Monday, May 25






Skemmdir á byggingum í Þýskalandi eru ennþá sjáanlegar þrátt fyrir að heimsstyrjöldin síðari sé löngu liðin. Listamaðurinn Jan Vormann hefur hafist handa við að fylla í þessar skemmdir og nú eru stríðssprungur og byssukúlugöt fyllt með litríkum legókubbum. Vormann hefur fyllt upp í skemmdir m.a í Berlín, Tel Aviv og Bocchignano á Ítalíu.  Á síðunni www.platform21.nl má lesa áhugavert viðgerðarmanifestó hugmyndahópsins Platform 21 sem stendur fyrir viðgerðarsamkeppni í sumar þar sem Vormann mun taka þátt.

No comments:

Post a Comment